Þann 11. janúar 2021 var gefin út skýrsla af Eflu með tillögu Faxaflóahafna að matsáætlun um þróun Sundahafnar. Í skýrslunni var sett fram tillaga að matsáætlun á umhverfisáhrifum framkvæmda Faxaflóahafna við dýpkun Viðeyjarsunds og landfyllinga. Fyrirhugað er að lengja Skarfabakka til suðurs, færa Kleppsbakka utar, lengja Sundabakka og Vogabakka svo að þeir nái saman. Við Klettagarða verður núverandi landfylling stækkuð utan við skólphreinsistöð Veitna. Í heildina er áætlað að taka 3.150.000 m3 af efni af hafsbotni við dýpkun Viðeyjarsunds. Heildarefnisþörf allra landfyllinga er metin um 2 milljónir m3. Með framkvæmdunum verða aflagðir hafnarbakkar með lengd upp á um 770 m en nýjir bakkar verða í heildina 960 m langir, alls er því verið að auka heildarlengd hafnarbakka um 190 m. Þetta er ekki mikil aukning á hafnarbakkalengd enda eru framkvæmdirnar aðallega til að auðvelda móttöku stærri skipa, einkum nýrra flutningaskipa en einnig til að taka á móti stærri skemmtiferðaskipum og öðrum skipum (Efla, Þróun Sundahafnar, 2021).
Um er að ræða efnistöku og haugsetningu sem nemur meira magni en 150.000 m3 og er á svæði sem er stærra en 5 ha. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum fellur framkvæmdin því undir flokk A, þ.e. framkvæmd sem ávallt er háð umhverfismati, með vísan til töluliða 2.01 og 13.01 í 1. viðauka laganna. Drög að tillögu að matsáætlun voru birt til kynningar um tveggja vikna skeið, frá 23. október til og með 6. nóvember 2020. Á þessu tímabili gafst almenningi tækifæri til að koma með athugasemdir við tillöguna. Engar athugasemdir bárust.
Allir geta kynnt sér tillögu Faxaflóahafna að matsáætlun á umhverfisáhrifum þróunar Sundahafnar og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. febrúar 2021 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is
Áhugasamir geta lesið sig til um tillöguna hér
Yfirlitskort sem sýnir afstöðu Sundahafnar á Höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdasvæðið er
innan græna afmarkaða svæðisins. Efni verður losað norðvestan við Engey.
Grunnkort: Landmælingar Íslands. Mynd: Tekin úr matsáætlun.
Yfirlitsmynd af öllum fyrirhuguðum landfyllingum og dýpkunarsvæði. Mynd: Tekin úr matsáætlun.