Nú styttist óðum í að sumarið fari að ganga í garð. Því hvetja Faxaflóahafnir sf. leigjendur og lóðarhafa á hafnarsvæðinu að huga vel að nærliggjandi umhverfi. Mikilvægt er að hafa snyrtimennsku og öryggi í fyrirrúmi. Öryggis- og umhverfisreglur Faxaflóahafna má finna hér. Framlag allra fyrirtækja skiptir miklu máli fyrir ásýnd og öryggi svæðisins. Tökum höndum saman og gerum gott hafnarsvæði enn betra.
Með fyrirfram þökk.
Faxaflóahafnir sf.