Mikilvægur áfangi Faxaflóahafna í vegferðinni í átt að snjallari og skilvirkari höfnum er náð með nýju sjálfafgreiðslustöðvunum. Í fyrsta áfanga voru settar upp þrjár sjálfafgreiðslustöðvar á Austurbakka, sem þjónusta báta og skip með rafmagn, heitt og kalt vatn. Aðgangur að rafmagni og vatni hefur hingað til krafist þess að hafnarstarfsmenn séu kallaðir til að virkja þjónustu á staðnum og skrá notkun handvirkt. Með Marineium og Waterstation lausninni frá danska fyrirtækinu Vikingegaarden A/S – Smart IoT solutions. í gegnum Emiko stýrikerfið, getum við nú veitt viðskiptavinum Faxaflóahafna aðgang að skilvirku sjálfsafgreiðslukerfi. Þessar nýju stöðvar veita 24/7 aðgang að rafmagni, köldu vatni og heitu vatni – alla daga ársins.

Í gegnum Emiko stýrikerfið geta viðskiptavinir hafnarinnar nú pantað og stjórnað þjónustu í gegnum snjallforrit í símanum, með netgreiðslum, rauntíma fjarvöktun á notkun, skýrslugerð og viðvörunum. Þessi þróun eykur ekki aðeins þægindi viðskiptavina heldur bætir einnig skilvirkni, og mætir kröfum markaðarins um skilvirka miðlun á umhverfisspori vörunnar alla leið til neytenda.

Sjálfsafgreiðslustöðvar á öðrum bryggjum og bökkum

Faxaflóahafnir stefna að því að þessar sjálfafgreiðslustöðvar leysi smátt og smátt af hólmi núverandi fyrirkomulag. Til að byrja með verður horft til afgreiðslu á rafmagni til smábáta sem í dag er leyst með sérstökum mælasnúrum með álestri.

FaxaportsFaxaports linkedin