Nú er árið 2020 gengið í garð og því gott að fara yfir liðið ár. Faxaflóahafnir sf. hafa gert það að vana sínum að halda utan um yfirlit um skipakomur, tegundir skipa og stærð þeirra. Á árinu 2019 komu samtals 1.378 skip. Ef við berum tölur ársins 2019 saman við tölur 2018, þá var fækkun um 97 skipakomur milli ára eða rúmlega 7 %. Mest var aukningin á árinu 2019 í komu farþegaskipa eða um rúmlega 25%. Um 10% aukning varð síðan á skipakomum tankskipa og um 3% aukning á flutningaskipum. Hins vegar fækkaði mest í skipakomum annarra skipa (þ.e. skútur, snekkjur og skip sem flokkast ekki undir neðangreindar tegundir) eða um rúmlega 49%. Skipakomum rannsóknar- og varðskipa fækkaði um 27 % og skipakomum fiskiskipa fækkaði um 26 %.
Ef við skoðum hins vegar nánar samtals brúttótonnatölu skipa sem koma til Faxaflóahafna, þá er sjáanlegur munur milli ára. Á árinu 2018 komu skip að stærð 12.143.107 brúttótonn til hafna Faxaflóahafna. Hins vegar varð aukning á árinu 2019, en þá var heildarstærðin kominn upp í 13.592.129 brúttótonn.
Hér að neðan má sjá þróunina á skipakomum frá árinu 2010 til 2018:
a) Fjöldi skipa
b) Samanlögð stærð
c) Skipakomur fyrir árið 2019, sundurliðaðar eftir mánuðum.