Faxaflóahafnir tóku á móti Dr. Claudia Schilling, ráðherra vísinda- og hafnarmála í sambandsríkinu Bremen í Þýskalandi og föruneyti í gær. Með í för voru fulltrúar hafnarinnar í Bremen og Bremerhaven ásamt starfsmönnum ráðuneytisins og fulltrúa vindorkufyrirtækisins WPD GmbH. Bremenhöfn hefur eins og kunnugt er kannað kosti þess að byggja höfn í Finnafirði og er sendinefndin m.a. hingað til lands komin til að kynna sér það verkefni. Mikill áhugi er í Þýskalandi fyrir samstarfi við Ísland og íslenskar hafnir um framleiðslu rafeldsneytis með grænni raforku og var m.a. framtíðarsýn beggja hafna í þeim málaflokki rædd.
Mikill áhugi í Þýskalandi fyrir samstarfi við Ísland og íslenskar hafnir um framleiðslu rafeldsneytis með grænni raforku
4. maí, 2022 | Forsíðu fréttir