Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum bjóða Faxaflóahafnir til málþings þriðjudaginn 18. október klukkan 15:00 til 17:00 í Björtuloft, Hörpu.
Þema málþings Faxaflóahafna 2022 er grænar hafnir og verður dagskrá eftirfarandi:
15:00 Ávarp stjórnar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, varaformaður stjórnar Faxaflóahafna
15:15 Loftgæði og landtengingar
Helgi Laxdal, sviðsstjóri innviða Faxaflóahafna
15:30 Heilsa sjávar og kolefnisbinding
Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, framkvæmdarstjóri Running Tide
15:45 Orkuskipti atvinnutækja – Vetnisáfyllingarstöð í Sundahöfn
Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdarstjóri VETNIS Iceland ehf
16:00 Grænn iðngarður á Grundartanga
Ólafur Adolfsson, Þróunarfélag Grundartanga
16:15 Grænar hafnir – samantekt
Gunnar Tryggvason, starfandi hafnarstjóri Faxaflóahafna
16:30 Umræður og fyrirspurnir
17:00 Þinglok
Fundarstjóri: Inga Rut Hjaltadóttir, sviðstjóri framkvæmdasviðs
Málþingið er opið öllum og eru aðilar sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sérlega hvattir til að mæta. Á málþinginu munu þátttakendur hafa tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar varðandi hafnirnar, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini Faxaflóahafna.