Sunnudaginn 17. ágúst kom til hafnar í Reykjavík nýtt skip Eimskipafélags Íslands og ber skipið nafnið Lagarfoss, sem er sjöunda skip félagsins með því nafni, en sá fyrsti var í eigu félagsins frá árinu 1917 til 1949.
Skipið var smíðað í Kína, en burðargeta skipsins er 12.200 tonn. Það er 140,7 metrar á lengd og 23,2 metrar á breidd. Skipið er búið öflugum skut- og bógskrúfum og er sérstaklega styrkt fyrir íssiglingar, með ísklassa 1A, auk þess að vera með tengla fyrir 230 frystigáma.
Nú eru tæp 100 ár síðan Eimskipafélagið lagði fyrsta skipi sínu að bryggju í Reykjavík, en þann 15. apríl árið 1915 kom fyrsta skip félagsins, Gullfoss, til hafnar í Reykjavík.
Lagarfoss lagðist að Miðbakkanum í Reykjavík en áratugir eru síðan gámaskip félagsins komu í Gömlu höfnina, en fyrirtækið flutti starfsemi sína í Sundahöfn árið 1968.