Binding kolefnis á vegum Faxaflóahafna nam 790,6 tCO2e fyrir árið 2018. Þar af voru 348 tonn CO2 bundin með endurheimt votlendis í gegnum votlendissjóð og 442,6 tonn CO2 bundin í skógi í landi Klafastaða.
Nettó losun Faxaflóahafna, sé litið á losun gróðurhúsalofttegunda í allri virðiskeðjunni, nam því 98,7 tCO2e.
Upplýsingar má nálgast í Grænu bókhaldi Faxaflóahafna.