Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á fundi sínum í morgun að ráða Gunnar Tryggvason sem hafnarstjóra Faxaflóahafna.
Stjórn byggði ákvörðun sína á tillögu ráðgefandi hæfnisnefndar sem mælti einróma með ráðningu Gunnars í stöðuna.
Gunnar hefur verið starfandi hafnarstjóri frá maí síðastliðnum.
Gunnari er óskað til hamingju með starfið og óskað velfarnaðar í starfi.