IMG_0079Á málþingi Faxaflóahafna sf. í nóvember s.l. var m.a. sagt frá fyrirhuguðum endurbótum á umhverfi, götu og gangstéttum við hluta Grandagarðs.
Nokkuð hefur aukist á verkið þar sem m.a. Orkuveitan telur óhjákvæmilegt að endurnýja lagnir á svæðinu.
Fyrirhugað er að bjóða verkefnið út á næstu dögum og er áætlaður verktími fyrri áfanga verkefnisins frá febrúar til maí 2016 og seinni hluta verkefnisins frá lokum ágústmánaðar fram í byrjun nóvember 2016.
Hér er hægt að sækja kynningargögn sem sýna fyrirhugaðar framkvæmdir.
Ábendingar og athugasemdir má senda á netfangið: abendingar@faxafloahafnir.is
Gísli Gíslason, hafnarstjóri

FaxaportsFaxaports linkedin