Venus NS 150, sem er í eigu Brims, kom til Akraness kl. 06:00 í morgun með um 2000 tonn af loðnu. Skipið hafði verið á veiðum norður af Langanesi. Þetta er fyrsti loðnufarmurinn sem kemur til Akraness árið 2022, því má segja að þetta er ansi góð byrjun á árinu. Lítið hefur borist af loðnu til Akraness undanfarnar vertíðar og vert ber að nefna að síðast barst loðna þetta snemma til Akraness árið 2012, þ.e. fyrir 10 árum síðan. Loðnuveiðar hófust í byrjun desmber sl. og standa vonandi fram á vormánuði.