Sunnudaginn 9. júní sigldi skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen frá norska skipafélaginu HX Hurtigruten Expeditions til Reykjavíkur, lagðist að bakka við Miðbakka hjá Faxaflóahöfnum og landtengdist rafmagni. Um var að ræða fyrstu landtengingu skemmtiferðaskips á Miðbakkanum í Reykjavík, en landtengingin er liður í stefnu Faxaflóahafna varðandi landtengingar fyrir öll skip. Í tilefni áfangans var haldin athöfn við höfnina þar sem Cecilie Willoch, sendiherra Noregs á Íslandi, var viðstödd og ávarpaði gesti.

Með landtengingunni eru loftgæði í borgum efld með norsk – íslensku hugviti og tækni þar sem skip hafa viðkomu og er landtenging á Miðbakka enn einn áfangi í þeirri vegferð að landtengja þau skip er leggjast að bryggju í Faxaflóahöfnum.

Margt hefur áunnist í sjálfbærnivegferð Faxaflóahafna en nú þegar eru fiskiskip landtengd þegar þau liggja við bryggju og landtenging stærstu gámaskipa Eimskips við Sundabakka var tekin í notkun í lok árs 2022. Landtenging stærstu skemmtiferðaskipa á Skarfabakka í Sundahöfn er á þriggja ára áætlun, þar sem að Evrópusambandið hefur sett skilyrði fyrir hafnir, líkt og Faxaflóahafnir, að vera tilbúnar með landtengingar með rafmagni fyrir öll skip fyrir árið 2030.

Faxa­flóa­hafn­ir eru meðal fyrstu höfn­um heims sem hafa þann mögu­leika að geta land­tengt skemmti­ferðaskip með raf­magni, en land­teng­ing­in er stórt skref fyr­ir Faxa­flóa­hafn­ir og um­hverf­is­mál­ Reykjavíkurborgar. Noregur hefur að mörgu leiti verið fyrirmynd Faxaflóahafna í framþróun umhverfismála hafna þar sem Norðmenn eru framarlega á því sviði.

„Það er stór áfangi hjá Faxaflóahöfnum þegar við náum að landtengja skip með þessum hætti og fyrsta skemmtiferðaskipið var landtengt með rafmagni síðasta haust við Faxagarð. Faxagarður tekur við minni skemmtiferðaskipum, en Miðbakki við þeim stærri og með landtengingu Fridtjof Nansen er verið að draga talsvert úr olíunotkun skipsins. Þetta eykur loftgæðin í Reykjavíkurborg og dregur úr útblæstri skipsins á landi og sjó,“ – segir Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna.


 

FaxaportsFaxaports linkedin