Alls hafa 103 íslenskar stofnanir og fyrirtæki, þ.m.t. Faxaflóahafnir sf., skuldbundið sig til að setja sér markmið og grípa til aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og myndun úrgangs. Um er að ræða samstarf Reykjavíkurborgar og Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, en árangur verður metinn reglulega og upplýsingu miðlað um stöðu mála.
Í byrjun desember næstkomandi mun 21. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fara fram í París (COP21). Þar verður Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna vegna loftslagsbreytinga (UNFCCC) samþykktur, með það að markmiði að sporna við hnattrænni hlýnun og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Fyrirtæki um allan heim hafa í vaxandi mæli tekið skýra afstöðu í umhverfismálum og er nærtækt að nefna áskorun fyrirtækja frá 130 löndum þar sem kallað er eftir metnaðarfullum markmiðum á fyrirhugaðri loftslagsráðstefnu. Mikilvægt er að borgir og fyrirtæki taki frumkvæði. Fyrst um sinn verður aðildarfyrirtækjum Festu, stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkurborgar og 300 stærstu fyrirtækjum á Íslandi boðin þátttaka í verkefninu. Verkefnið er hugsað sem hvatning til rekstraraðila um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á eigin forsendum og sýna þar með frumkvæði og ábyrgð gagnvart umhverfinu og samfélaginu. Þátttakendum mun einnig bjóðast fræðsla varðandi loftslagsmál, bæði hvernig nálgast á viðfangsefnið með praktískum hætti og reynslusögur annarra fyrirtækja af því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri.
Faxaflóahafnir sf. hafa haldið grænt bókhald allt frá árinu 2006 og sett sér ákveðna umhverfisstefnu. Nú er unnið að umhverfis- og öryggisvottun fyrirtækisins og með þátttöku í áskorun til fyrirtækja um að ná árangri í losun gróðurhúsalofttegunda og minnkun úrgangs er ljós hver stefna og vilji fyrirtækisins er. Eins og vænta má er ekki við öðru að búast en starfsfólk fyrirtækisins nái árangri í þessu verkefni.