Í dag, 24.05.2016, kom leiðangursskipið Ocean Dimond að Miðbakka. Skipið var byggt árið 1974 og er 8282 brúttótonn. Lengd skipsins er 124.19 m. og breidd 16 m. Ocean Dimond er í 3 ára leigu hjá íslensku fyrirtæki, Iceland ProCruises. Í fyrra sigldi skipið það átta hringi í kringum landið og kom við á fjölmörgum höfnum. Áætlað er að skipið muni hafa 13 viðkomur þetta árið í Reykjavík og því er um 6 % aukningu milli ára.