640px-Крузенштерн_10Í dag, þriðjudaginn 9. júní, kemur fjagra mastra seglskipið Kruzenshtern til Reykjavíkur. Skipið er rússneskt og smíðað í Bremerhaven, Þýskalandi árið 1926. Árið 1946 var Rússum afhent skipið sem hluti af uppgjöri seinni heimstyrjaldarinnar og er heimahöfn skipsins nú Kaliningrad í Rússlandi.
Kruzenshtern er stálskip, 6.400 brúttótonn að stærð, með fjögur möstur og lengdin er 114 metrar. Frá vatnsborði upp í masturstopp eru 56 metrar og samstals ber skipið 31 segl. Með fullum seglum og góðum byr getur Kruzenshtern náð 17 hnúta hraða.
Skipið er í eigu „Baltic State Academy of the Fishing Fleet í Kaliningrad“ og er gert út sem skólaskip. Í áhöfn eru 70 sjómenn og um borð geta verið 160 lærlingar.

FaxaportsFaxaports linkedin