Strax í byrjun nýs árs munu nokkrar starfsmannabreytingar eiga sér stað hjá fyrirtækinu og eru þær tilgreindar hér að neðan:
Nýir starfsmenn
- Starf ritara: Guðbjörg Erna Erlingsdóttir hefur verið ráðin í starf ritara.
- Starf öryggisfulltrúa: Bergsteinn Ísleifsson hefur verið ráðinn í starf öryggisfulltrúa. Hallur Árnason mun koma Bergsteini inn í starfið fram eftir ári.
- Skipulagsfulltrúi: Halldóra Hrólfsdóttir mun gegna starfi skipulagsfulltrúa meðan Hildur Gunnlaugsdóttir er í fæðingarorlofi.
Faxaflóahafnir sf. óska nýjum starfsmönnum velfarnaðar í starfi.
Starfsmenn sem munu láta af störfum 2018
- Hafnarþjónustan: Halldór Valdemarsson eftir 38 1/2 árs starf hjá höfninni (1. apríl 1979)
- Skipulagsfulltrúi: Vignir Albertsson eftir 39 ára starf hjá höfninni (20. júlí 1978)
- Öryggisfulltrúi: Hallur Árnason eftir 45 ára starf hjá höfninni (1. maí 1973)
Faxaflóahafnir sf. óska þeim sem eru að hætta á næsta ári farsældar í öllu því sem þeir munu taka sér fyrir hendur. Takk fyrir ykkur framlag að gera höfnina eins og hún er í dag. Við metum það mikils.