Í júlí síðastliðnum var starf yfirverkstjóra Faxaflóahafna auglýst til umsóknar. Gefinn var frestur til loka júlí til þess að legga inn umsóknir. Alls bárust fjörutíu og þrjár umsóknir um starfið.
Í framhaldi af því voru sjö umsækjendur teknir í viðtöl. Niðurstaða ofangreindra viðtala var að ráða Jóhann Pál Guðnason í starfið. Jóhann Páll hefur unnið hjá Bækistöð Faxaflóahafna sem húsasmiður síðan júlí 2007 og er því vel kunnugur starfsemi Faxaflóahafna.
Jón Guðmundsson yfirverkstjóri mun láta af störfum í lok október næstkomandi og þá mun nýr verkstjóri taka til starfa.
Helgi Laxdal
Forstöðumaður rekstardeildar