Eins og öllum er kunnugt starfar öryggisnefnd innan Faxaflóahafna sf. og fjallar hún um ýmis starfstengd atriði sem rétt er að skoða sérstaklega.  M.a. hefur nefndin unnið að gerð öryggisreglna sem gilda eiga um starfsmenn.  Reglurnar hafa nú verið samþykktar af öryggisnefndinni og undirritaðar af hafnarsjtóra og taka því þegar gildi. 

Sú vísa að fyllsta öryggis sé gætt er aldrei of oft kveðin og þess vegna eru settar öryggisreglur, sem treyst er að verði fylgt í hvívetna.  Reglurnar verða kynntar á starfsstöðvunum auk þess sem þær verða þar aðgengilegar.

Öryggisreglurnar má sjá hér.

FaxaportsFaxaports linkedin