Markmið Faxaflóahafna sf. er að fyrirtækið sé slysalaus vinnustaður þar sem öryggi starfsfólks er haft að leiðarljósi. Faxaflóahafnir sf. leggja metnað sinn í að hafa aðstæður á starfsstöðum sínum sem allra bestar þannig að starfsfólk sé eins öruggt og kostur er. Faxaflóahafnir leggja til allan nauðsynlegan öryggisbúnað sem ætlast er til að starfsfólk noti í störfum sínum fyrir fyrirtækið.
Starfsfólk Faxaflóahafna skal fylgja eftirfarandi:
· Allt starfsfólk skal hljóta nýliðafræðslu samkvæmt gátlista, þar sem kynntar eru allar starfsstöðvar fyrirtækisins og farið yfir öryggistæki.
· Starfsfólk skal hafa tilskylda þekkingu og þjálfun til að sinna störfum sínum á öruggan hátt. Tryggt skal að starfsfólk hafi nauðsynlega yfirsýn og þjálfun og hafi tilskilin réttindi, þar sem þess er krafist.
· Starfsfólk skal halda vinnusvæðum sínum hreinum, hættulausum og snyrtilegum þannig að ástand eigna Faxaflóahafna sé alltaf eins og best verður á kosið.
· Starfsfólk skal sýna frumkvæði í að bera kennsl á óöruggar aðstæður eða varhugaverða hegðun fólks og finni viðeigandi úrræði.
· Starfsfólk skal undantekningarlaust nota viðeigandi persónu- og öryggishlífar þar sem þeirra er krafist er við störf þess.
· Á framkvæmdasvæðum Faxaflóahafna skal nota öryggishjálm.
· Starfsfólk Bækistöðvar skal almennt nota öryggishjálma, fatnað í öryggislit, öryggisskó og hlífðargleraugu þegar unnið er með vélum og tækjum sem hætta getur stafað af.
· Starfsfólk Hafnarþjónustu skal við móttöku skipa nota bjargvesti, fatnað í öryggislit og öryggishjálma.
· Allar persónu- og öryggishlífar skulu vera af viðurkenndri gerð.
· Starfsfólk skal ávallt mæta vel hvílt til vinnu þannig að það hafi fulla athygli við störf sín og stuðli þannig að öryggi á starfsstöð sinni.
· Flóttaleiðir og neyðarútgangar allra starfsstöðva Faxaflóahafna skulu ávallt vera greiðar þannig að þær megi nota hindrunarlaust hvenær sem er.
· Starfsfólki er skylt að tilkynna slys eða hættu á slysum til næsta yfirmanns, sem ber að skrá öll slík atvik.
· Faxaflóahafnir heimila ekki reykingar á vinnustað og eru reykingar bannaðar í bifreiðum og húsakynnum Faxaflóahafna. Þar sem sérstök reykherbergi eru til staðar eru reykingar heimilar.
· Öll neysla áfengis og vímuefna er stranglega bönnuð.
Öllu starfsfólki ber skylda til að framfylgja öryggisreglum á vinnustaðnum og að tryggja öryggi í starfi eins og framast er kostur.
Þannig samþykkt á fundi öryggisnefndar Faxaflóahafna sf. 20. apríl 2009.
____________________________
Gísli Gíslason, hafnarstjóri