Ár 2011, 12. Apríl kom öryggisnefnd Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl.10:45.
Mættir:
Hallur Árnason
Jón Guðmundsson
Ragnar Arnbjörnsson
Gísli Jóhann Hallsson
Júlíus Víðir Guðnason
Þórdís Sigurgestsdóttir
Atriði sem farið var yfir á fundinum:
- Rætt var um læknisskoðanir sem fram fóru nýlega hjá starfsmönnum hafnarþjónustu. Öryggisnefndin lýsir ánægju sinni með framtakið og fór Ragnar öryggistrúnaðarmaður í bækistöð fram á að starfsmenn bækistöðvar fengju einnig tækifæri á að fara í slíka læknisskoðun. Hallur tekur að sér að kanna málið.
- Farið yfir slys og næstum slys sem orðið hafa að undanförnu. Öryggisnefndin ítrekar mikilvægi þess að starfsmenn séu meðvitaðir um hættur í starfi og stefnir á að settar verði verklagsreglur fyrir hin ýmsu störf.
- Tryggingamál. Fram kemur í máli Halls að nýlega hefði fengist staðfesting á að farþegar, sem fara með dráttarbátum hafnarinnar séu ávalt tryggðir svo lengi sem fjöldi farþega fer ekki yfir leyfilegan fjölda um borð í báti.
- Jón veltir upp þeirri spurningu hvort ekki sé kominn tími á að halda námskeið í meðferð slökkvitækja og í fyrstu hjálp fyrir starfsmenn. Nefndin tekur jákvætt í það en telur meiri þörf á að starfsmenn bækistöðvar og skrifstofu fari á slíkt námskeið þar sem starfsmenn hafnarþjónustu fari reglulega á slík námskeið. Hallur tekur að sér að skoða málið.
- Tillaga lögð fram um að Gísli verði gerður að öryggisverði og að Jósef Ægir Stefánsson verði gerður að öryggistrúnaðarmanni. Öryggisnefnd samþykkir einróma og er ákveðið að bera upp á næsta aðalfundi starfsmannafélags Faxaflóahafna sf.
Fleira ekki gert,
Fundi slitið 11:50