Ár 2009, 20. apríl kom öryggisnefnd Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 10:30.
Mættir:
Hallur Árnason
Jón Guðmundsson
Ragnar Arnbjörnsson
Gísli Jóhann Hallsson
Júlíus Víðir Guðnason
Þórdís Sigurgestsdóttir
Atriði sem farið var yfir á fundinum
1. Nýjar öryggisreglur Faxaflóahafna sf. lagðar fram til samþykktar. Reglurnar voru samþykktar einróma og sendar hafnarstjóra til samþykktar og undirskriftar.
2. Umræða um uppsetningu stubbahúsa á starfsstöðum. Öryggisnefndin telur nauðsynlegt að setja upp stubbahús á þeim starfsstöðum þar sem ekki er sérstakt reykherbergi.
3. Umræða um námskeið sem fram hafa farið að undanförnu. Alls sóttu 72 þau fjögur námskeið sem í boði voru. Námskeiðin þóttu misgóð en samdóma álit var að skyndihjálparnámskeiðið hefði staðið uppúr.
4. Rætt um læknisskoðanir á starfsmönnum. Nefndin telur nauðsynlegt að starfsmenn hafnarþjónustu gangist undir læknisskoðun á tveggja ára fresti vegna eðli starfa þeirra og þá einna helst réttindamenn. Ákveðið að senda ca. 17 réttindamenn þetta árið.
5. Upplýsinga- og öryggishandbók. Hraða þarf gerð slíkrar bókar og taka Þórdís og Júlíus það að sér.
6. Ákveðið að næsti fundur verði 18. maí 2009 kl. 10:30
Fleira ekki gert,
Fundi slitið 12:00