Ekki verður sagt að innri vefurinn hafi verið sérstaklega virkur til upplýsingagjafar síðustu mánuði – en batnandi mönnum best að lifa og því reynt að bæta að hluta úr.  Hér er smá listi yfir verkefni sem eru í gangi akkúrat þessa dagana:

  1. Í gær, þriðjudaginn 10. nóvember, var undirritað samkomulag við sænska fyrirtækið Inport Intelligent Port Systems AB um kaup á nýju hafnarkerfi.  Hafnarkerfið sem við notumst við er orðið ævafornt og var heimasmíðað á sínum tíma og hefur dugað ágætlega.  Nú er hins vegar ljóst að það kerfi verður ekki þróað lengra og skynsamlegt að snúa sér að klerfi sem aðrar hafnir í nágrannalöndum okkar nota.  Inport var áður í eigu Helsingborghafnar – en er nú sjálfstætt fyrirtæki.  Það hefur selt PORTIT kerfið til tæplega 40 hafna m.a. Helsingborghafnar, IMG_0690Kaupmannahafnar/Malmö, Gautaborgar og fleiri aðila – stórra og smárra.  Nokkur tíma mun taka að setja kerfið upp og þjálfa þá sem eiga að nota kerfið, en kerfið verður væntanlega gangsett í mars eða apríl á næsta ári.  Auk þess að ná utan um alla skráningu vegna komu og brottfara skipa, þjónustu við þau og fleira þá opnast möguleikar á aukinni rafrænni vinnslu við ýmsa þætti sem verða þróaðir áfram.
  2. Unnið er að undirbúningi að ná Perlunni upp – Björguna og tryggingarfélag Björgunar ásamt verktökum og ráðgjöfum eru að setja saman áætlun um aðgerðir sem vonanid duga. Áætlunin mun birtast fljótlega.
  3. Málþing Faxaflóahafna sf. verður haldið í Hörpunni miðvikudaginn 25. nóvember kl. 16:00.  Þar verður m.a. fjallað um umhverfis- og skipulagsmál.  Undirritaður mun fara yfir verkefni okkar til bætts umhverfis, Svavar Svavarsson hjá HB Granda hf. mun fjalla um breytingar á fiskiskipaflota félagsins og minni útblástur, Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri mun fara yfir hugmyndir að skipulagi Sementsverksmiðjureitsins á Akranesi, Guðmundur Kristjánsson í Brim hf. mun fjalla um flutninga og skipulag og loks mun Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður stjórnar fjalla um hugsanlegar Flóasiglingar milli Reykjavíkur og Akraness. Akranes - fylling2015
  4. Unnið er að undirbúningi að gerð nýs Kleppsbakka – en Jón Þorvaldsson er að undirbúa það verkefni að gera jarðlög klár fyrir niðurrekstur þils – en til þess þarf nokkrar sprengingar sem munu eiga sér stað á komandi vikum.  Þegar hefur verið auglýst á EES svæðinu útboð á stálþilinu, sem væntanlega mun koma til landsins um eða upp úr miðju ári.
  5. Viðræður eru í gangi við fulltrúa Silicor um upphaf framkvæmda á Grundartanga.  Að sögn þeirra gengur undirbúningur ágætlega þó svo að enn eigi eftir að hnýta ýmsa enda áður en allt verður klárt til framkvæmda.
  6. Beðið er eftir ákvörðun bæjarstjórnar Akraness um framhald undirbúnings við nýja landfyllingu á Akranesi fyrir starfsemi HB Granda hf., en um er að ræða á.a.g. 40.000 fermetra fyllingu þar sem HB Grandi hf. hyggst byggja nýtt frystihús, frystigeymslu og nýtt uppsjávarfrystihús.
  7. Lauslega hefur verið rætt við stéttarfélög starfsmanna um gerð kjarasamnings – en beðið var eftir niðurstöðu samninga SFR, lögreglunnar og Sjúkraliðafélagsins.  Nú liggja þeir samningar fyrir og beðið viðbragða stéttarfélaganna um framhaldið.  Lögð hefur verið áhersla á að nýir kjarasamningar liggi fyrir sem fyrst – og allra helst fyrir áramót.

Ekki var það fleira að sinni.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri
 

FaxaportsFaxaports linkedin