Tvær heimsóknir til okkar eru á döfinni í janúar.  Annars vegar starfsfólk frá Oslóarhöfn og hinsvegar fulltrúar frá Yantai Port í Kína.  Á fimmtudag og föstudag mæta fulltrúar Oslóarhafnar til Íslands þar sem stjórnendur hafnarinnar verða með vinnufund í Reykjavík.  Þeir munu njóta leiðsagnar um hafnarsvæðið í Reykjavík á fimmtudga og síðan verður sameiginlegur fundur með stjórnendum hafnanna á föstudag.  Miðvkudaginn 16. janúar koma 10 fulltrúar frá Yantai Port í Kína í heimsókn og fá að njóta fróðleiks um Faxaflóahafnir sf. auk þess sem þeim verður sýnt hafnarsvæðið í Reykjavík.

FaxaportsFaxaports linkedin