Þá er Brauðterukaffið að baki og stefnir óðfluga í nýtt ár.  Í kaffinu þetta árið var Böðvari Þorvaldssyni, starfsmanni Faxaflóahafna sf. þakkað fyrir samstarfið en Böðvar verður 70 ára 2. janúar 2010 og lætur formlega af störum um mánaðarmótin janúar-febrúar.  

Eftir nokkuð rysjótt ár er efst í huga að þakka starfsfólki Faxaflóahafna sf. fyrir vel unnin störf og trausta samfylgd á liðnu ári.  Komandi ár verður eflaust mörgum þungt – en hvað Faxaflóahafnir sf. varðar þá er gott að vita til þess að þar skipar hverja stöðu gott starfsfólk þannig að án vafa komumst við vel áleiðis með áhugaverð og mikilvæg verkefni.

Megi árið 2010 verða ykkur öllum farsælt og gæfuríkt.

Gísli Gíslason, hafnarstjóri

FaxaportsFaxaports linkedin