![img_8235](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2013/08/upload/images/frettir/4181806_img_8235.jpg)
Á fundi hjá Ferðamálaráði Grænlands
![img_8258](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2013/08/upload/images/frettir/4181810_img_8258.jpg)
Glaðbeittur við höfnina
Faxaflóahafnir tóku þátt í Kaupstefnu Flugfélags Islands sem var haldin í Nuuk, Grænlandi, dagana 28. til 30 október s.l. Þetta var í annað skiptið sem höfnin er með í þessari kaupstefnu en markmiðið er að ná tengslum og viðskiptasamböndum á Grænlandi. Ágúst og Gísli Jóhann voru fulltrúar Faxaflóahafna en kaupstefnan var haldin í Kaduaq, sem ersamkomuhús bæjarins, þar sem hvert þátttökufyrirtæki hafði bás þar sem hægt var að setjast niður með áhugasömum einstaklingum. Einnig var farið í heimsóknir til fyrirtækja í Nuuk þar sem þjónusta Faxa far kynnt og möguleg viðskipti skoðuð.