Af gefnu tilefni gerði undirritaður smá könnun á starfsaldri hjá Faxaflóahöfnum sf.  Að sjálfsögðu komu út úr þessari könnun merkileg og skemmtileg vísindi.  Hér að neðan fer smá samantekt um þau atriði sem vöktu athygli:

Fyrst skal nefna að skráðir starfsmenn sem þessi könnun náði til eru fastráðnir starfsmenn í marsmánuði – en þeir eru nú 67 – 61 karl og 6 konur (sem er afleitur kvenmannshalli – en á sér langa sögu og mun eflaust breytast á komandi árum).   Þegar skoðaður er samanlagður starfsaldur allra starfsmanna þá hafa þeir unnið í samtals 684 ár – og hefur elfaust ýmislegu verið komið í verk á þeim tíma.  Þessi tala upplýsir að meðal starfsaldur hjá Faxaflóahöfnum er 10,2 ár.  Þegar samanlagður lífaldur allra starfsmanna er skoðaður kemur í ljós að hann er samtals 3.698  ár og hefur eflaust ýmislegt á dagana drifið á þeim árum öllum.  Af þessu leiðir hins vegar að hinn dæmigerði meðal starfsmaður er rétt liðlega 55 ára.

Þegar skoðað er hvernig starfsaldur dreifist á 10 ára tímabil er niðurstaðan þessi:

Starfsaldur 0 – 10 ár:45
Starfsaldur 10 – 15 ár:6
Starfaldur 15 – 20 ár:4
Starfsaldur 20 – 25 ár:4
Stafsaldur 25 – 30 ár:5
Starfsaldur > 30 ár:3
 Alls 67 starfsmenn

Síðan er þetta niðurstaðan þegar starfsmönnum er skipað í flokka eftir lífaldri:

Lífaldur 30 – 40 ára:4
Lífaldur 40 – 50 ára:13
Lífaldur 50 – 60 ára:35
Lífaldur 60 – 70 ára:15
 Alls 67 starfsmenn

Þá er að nefna hverjir það eru sem státa af lengstum starfsaldri.  Eflaust vitið þið flest hvernig þeim málum er skipað – en fyrir þá sem ekki vita þá er hér TOPP 12 listinn – en þar fara starfsmenn með yfir 20 ára starfsaldur og sá sem lengst hefur starfað er með 35 ár og 1 mánuð:

StarfsaldurNafn Ráðinn
35 ár og 1 mánuðirHallur Árnason 1973
34 ár og 11 mánuðirJón Þorvaldsson 1973
33 ár og 8 mánuðirHreinn Sveinsson 1974
29 ár og 10 mánuðirVignir Albertsson1978
28 ár og 11 mánuðirHalldór Valdemarsson 1979
27 ár og 10 mánuðirGunnbjörn Marinósson 1980
27 ár og 6 mánuðirRagnar Arnbjörnsson 1980
25 ár og 4 mánuðirKristján Erik Kristjánsson 1983
22 ár og 8 mánuðirAdam Ingvarsson 1985
21 ár og 11 mánuðirSigríður Sigurbjörnsdóttir 1986
21 ár og 10 mánuðirPétur Kristinn Kristjánsson 1986
20 ár og 10 mánuðirIngólfur Jóhannesson 1987

Ekki var það nú fleira um þessi mál.

Gísli G.

FaxaportsFaxaports linkedin