Stjórn starfsmanna hefur tekið ákvörðun: Árshátíð starfsfólks og stjórnar Faxaflóahafna sf. verður haldin föstudaginn 21. október n.k. í Silfursalnum á Hótel Borg. hotel_borg_reykjavik_iceland_exterior-3

Þessi tíðindi eru að sjálfsögðu fagnaðarefni – en reikna má með því að vinnuskylda eftir hádegið þennan dag verði skert þannig að veislugestir geti komið sér í sinn besta galla og reimað á sig glaumskíðin.  Þau Karl Hjaltested og Kristjana Ólafsdóttir munu auglýsa viðbúrðinn á næstun klukkutímum og kalla eftir skuldbindandi áritun og undirritun þeirra sem hyggjast taka þátt í gleðinni.  Örlítið breytt form verður á fyrirkomulaginu frá því sem áður hefur verið – en þau Kristjana og Karl munu greina frá því öllu saman í nefndri auglýsingu.  HÉR ER AUGLÝSINGIN!!

Gamansamir starfsmenn geta því farið að huga að skemmtiatriðum:=“)

FaxaportsFaxaports linkedin