Eins og gengur er lífið ekki alltaf sanngjarnt. Þeir sem eru á vöktum verða að sinna sínum störfum óháð, hátíðum, veislum og lífsins glaumi. Hins vegar eru jóladagar þannig stilltir að eftirfarandi hefur verið ákveðið fyrir aðra en þá sem eru ómissandi:
Mánudagurinn 24. desember – Lokað fyrir hádegi.
Föstudagur 28. desember – Brauðtertukaffi og samverustund á skrifstofu kl. 09:00 – 10:00
Mánudagur 31. desember – Lokað fyrir hádegi.
Miðvikudagur 2. janúar 2008: Vinna og puð fram að páskum!
Hafnarstjóri.