Nú líður að hausti og einnig því að gildandi kjarasamningar renni út.  Til upplýsingar er hér smá yfirlit um þá samninga sem Faxaflóahafnir sf. hafa gert og hver gildistími þeirra er. 

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar – gildir frá 1. okt. 2005 – 31. okt. 2008

Efling – stéttarfélag – 1. okt. 2005 – 31. okt. 2008

Samiðn – samband iðnfélaga – 1. okt. 2005 – 31. okt. 2008

Félags skipstjórnarmanna – 1. okt. 2005 – 31.okt. 2008

Vélstjórafélag Íslands – 1. okt. 2005 – 31. okt. 2008

Verkstjórasamband Íslands – 1. sept. 2005 – 31. okt. 2008

Nokkrir samningar hafa verið gerðir á hinum almenna markaði eins og kunnugt er og eflaust verða þeir að einhverju leyti hafðir til hliðsjónar þeim samningum sem framundan eru.  Reikna má með því að í september verið rætt við fulltrúa þeirra stéttarfélaga sem gert hafa samninga við Faxaflóahafnir sf.

FaxaportsFaxaports linkedin