Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni er bleikur litur hafður í fyrirrúmi hjá Faxaflóahöfnum í dag, föstudaginn 14. október. Faxaflóahafnir vilja með þessu styðja við alla þá sem eru að glíma við krabbamein.