Nú hafa nýjar göngubryggjur í Vesturbugtinni við Sjóminjasafnið verið teknar í notkun, en bygging þeirra hefur átt sér stað í áföngum síðustu ár. Af því tilefni var að loknum aðalfundi Faxaflóahafna sf. boðið til samverustundar með starfsfólki Sjóminjasafnsins og bryggjurnar opnaðar með viðhöfn.IMG_0603 - Copy
Það voru Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður stjórnar Faxflóahafna sf. og Gísli Gíslason, hafnarstjóri sem klipptu á borða af þessu tilefni, en m.a. hélt Sigrún Magnúsdóttir, auðlinda- og umhverfisráðherra ávarp, en hún stýrði uppbyggingu Sjóminjasafnsins um árabil áður en hún settist á Alþingi. Í Vesturbugtinni eru tvær nýjar flotbryggjur sem ætlað er að nota fyrir hafsækna ferðaþjónustu en um næstu helgi á Hátíð hafsins verða góðir gestir þar við bryggju. Annars vegar kemur kútterinn Westward Ho frá Færeyjum og hins vegar verður einnig í heimsókn góletta frá franska sjóhernum, Etoil. Það verður því líf og fjör í Vesturbugtinni um næstu helgi og vonandi að sem flestir nýti sér að líta á mannvirkin, en þar má segja að þar sé ávallt blíða og skjól.
IMG_0607 - Copy

FaxaportsFaxaports linkedin