messanger_gSeglskútan Messenger hefur haft vetursetu í Reykjavíkurhöfn og hjón með 3 börn sín hafa búið um borð. Vel hefur farið um þessa ágætu fjölskyldu þótt plássið sé lítið og upphitun af skornum skammti.
Tvær elstu dæturnar stunda nám í Austurbæjarskóla. Húsmóðurin, Natasha, var ófrísk af sínu fjórða barni sem hún fæddi um helgina í Albertshúsi á Ísafirði en þar var maður hennar, Jay, að aðstoða við viðgerð ú skútunni Áróru.
Albertshús er gamlat hús á Ísafirði og þar hafa fæðst 25 börn á árum áður og drengurinn hennar Natasha var númer 26,  16 merkur og 54 sentimetrar og báðum heilsast vel.
Þau Natasha, Jay, Sol, Luna og Caribe voru hæstánægð með nýjasta áhafnarmeðliminn.

FaxaportsFaxaports linkedin