Sem kunnugt er orðið þá var s.l. miðvikudag undirritað samkomulag milli Faxaflóahafna sf. og Silicor Materials um að Silicor reisi sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Með undirritun samkomulagsins er stigið fyrsta skrefið í verkefninu en ýmis verkefni eru framundan. Copy of 10-IMG_2367Framleiðsla Silicor er sólakísill sem fer m.a. til framleiðslu á sólarrafhlöðum. Í dag er þessi framleiðsla mjög plássfrek, en með nýrri aðferðafræði sem Silicor hefur einkaleyfi á þá er umfang starfseminnar minnkað verulega og allir verkferlar mjög hreinlegir.
Verksmiðjan verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum og umhverfisáhrif framleiðslunnar hverfandi – en ljóst að framleiðslan verður nýtt til mjög umhverfisvænna hluta. Það er í samræmi við væntingar og stefnu Faxaflóahafna sf. að sú starfsemi sem Silicor hyggst stunda á Grundartanga rísi.  Stafsemin er hóflega orkufrek, mannaflafrek, ekki síst varðandi tæknistörf og án umhverfisröskunar. Forráðamenn verkefnisins hafa nefnt að áætlaður starfsmannafjöldi verði um 400 manns.
Sú yfirlýsing sem undirrituð var á miðvikudag felur í sér að Silicor fái undir starfsemi sína 32 hektara lands, en þar er ráðgert að 5 hektarar lóðarinnar verði grænt svæði. Faxaflóahafnir sf. munu leggja nýjan veg að lóðinni, en fyrirtækið annast allar lóðaframkvæmdir.
Copy of 09-IMG_2366Úr lóðinni munu koma á.a.g. 550.000 rúmmetrar af efni, sem ætlunin er að nýta í næsta nágrenni lóðarinnar með landmótun og umhverfisbótum m.a. í kringum Katanestjörnina.  Hvalfjarðarsveit vinnur nú að breytingu á aðalskipulagi svæðisins og í undirbúningi er einnig vinna við deiliskipulag og stefnt að því að skipulagsþættinum verði lokið í ágúst eða september.
Silicor stefnir að því að hefja framkvæmdir á lóðinni í október og að hefja starfsemi á árinu 2016 eða 2017.
Það er því ljóst að framundan bíða stór verkefni en vonast er til að nauðsynlegri samningsgerð vegna lóðar, lóðarleigu, orkusamninga og fjármögnunar verði lokið í sumar.
Allir þeir þættir eru komnir áleiðis, en ýmis handtök þó eftir, sem eru forsenda þess að unnt sé að hefjast handa á lóðinni. Silicor leggur mikla áherslu á að hefja starfsemi sína í anda samfélagslegrar ábyrgðar og forráðamenn fyrirtækisins hafa þegar rætt við fulltrúa háskóla á Íslandi um menntun og þjálfun væntanlegra starfsmanna.
Copy of Sólarkísill
Takist allt vel til er ljóst að starfsemi Silicor mun verða merkileg nýjung í nýtingu grænnar orku.
Copy of 01-IMG_2347

FaxaportsFaxaports linkedin