Skipakomur (100 brt. og stærri) til hafna Faxaflóahafna sf. voru svipaðar á milli áranna 2012 og 2013 en nokkur breyting er þó á milli tegunda skipa.  Heildarfjöldi skipa sem komu til hafnar árið 2013 er nánast sá sami og árið áður eða 1.472 skip.  Brúttótonnafjöldi þeirra var eilítið lægri en árið 2012 eða 8.708.039 tonn.  Athygli vekur að komur flutningaskipa aukast úr 448 komum í 503 og tankskipum fjölgar úr 128 komum í 141.  Hins vegar fækkar komum togara úr 685 komum í 634.  Þróun mála má sjá í meðfylgjandi töflu.  Skipakomur til Faxaflóahafna sf 2005 – 2013
videy2

FaxaportsFaxaports linkedin