Nú þegar skemmtiferðaskipavertíðin er hálfnuð þá sýna tölur frá Det Norske Veritas (DNV), bætingu upp á 16% í umhverfisframmistöðu skemmtiferðaskipa samkvæmt Environmental Port Index (EPI) miðað við árið 2023. Meðaltals EPI einkunn fyrir árið 2023 var 40,97 stig en er 47,58 stig frá og með miðjum júlí 2024.

EPI er verkfæri sem gerir höfnum kleift að skilgreina umhverfisspor skemmtiferðaskipa á meðan viðkomu stendur. Markmiðið er að koma á fjárhagslegu hvatakerfi til umhverfisvænni og sjálfbærari rekstrar skemmtiferðaskipa og draga þannig úr ávinningi við að koma til hafna Faxaflóahafna með mengandi skip.

Skemmtiferðaskipum ber að skila inn gögnum til mats á umhverfisframmistöðu í höfn eigi síðar en 72 klst. eftir brottför. Á grunni þeirra gagna fær hvert skip EPI einkunn milli 0 (verst) og 100 (best). Skili skip ekki inn gögnum fær það sjálfkrafa 0 einkunn. EPI einkunn veitir að hámarki 17,5% afslátt af bryggjugjöldum og að hámarki 75% álag.

„Þetta eru gríðarlega gleðilegar fréttir sem sýna svo ekki verður um villst að á aðeins tveimur árum, eru bæði landtengingar og umhverfiseinkunnarkerfið EPI að virka sem skildi og styðja við umhverfisstefnu Faxaflóahafna“ segir Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna.

 

FaxaportsFaxaports linkedin