1 Opnun tilboða
Tilboðsfrestur vegna útboðsins Farþegamiðstöð Skarfabakka – Eftirlit og byggingarstjórn fyrir Faxaflóahafnir rann út þann 21. maí kl. 14:00.
Fimm aðilar sendu inn tilboð áður en skilafrestur rann út en það voru Efla ehf., Ferill ehf., Hnit hf., JT Verk ehf. og Strendingur ehf.
2 Niðurstaða opnunar
Eftirfarandi tilboð bárust:
Bjóðandi | Heildartilboðsfjárhæð m/VSK | Hlutfall af kostnaðaráætlun |
Strendingur ehf. verkfræðiþjónusta | 59.644.000 | 88,1% |
Efla ehf. | 66.092.000 | 97,6% |
Hnit verkfræðistofa hf. | 67.381.600 | 99,5% |
JT Verk ehf. | 68.671.200 | 101,4% |
Ferill ehf. | 87.048.000 | 128,6% |
Kostnaðaráætlun | 67.700.000 | 100,0% |
Tilboðsfjárhæðir eru hér birtar með fyrirvara um yfirferð tilboða m.t.t. hæfis bjóðenda og réttra útreikninga í tilboðsskrá. Tilboð allra bjóðenda verða nú yfirfarin m.t.t. þessa og niðurstaða útboðs tilkynnt í kjölfarið.
Farþegamiðstöð Skarfabakka-Eftirlit og byggingarstjórn-Opnun tilboða