Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík sunnudaginn 2. júní nk. Mikil spenna ríkir í herbúðum þeirra sem standa að hátíðinni enda má gera ráð fyrir fjölmenni við höfnina á Granda þar sem Sjóaranum síkáta, hátíðarhöldum Grindvíkinga, hefur verið boðið að taka þátt. Sú rómaða sjómannadagshátíð “Sjóarinn síkáti” sem haldin hefur verið í Grindavík í rúman aldarfjórðung verður á þessu ári við Reykjavíkurhöfn í ljósi aðstæðna í bænum.
Faxaflóahafnir, Sjómannadagsráð og Brim eru bakhjarlar Sjómannadagsins í Reykjavík og buðu Grindvíkingum að taka þátt og nota aðstöðuna við höfnina í höfuðborginni. „Það er mikið ánægjuefni að geta boðið heiðursgestunum frá Grindavík að taka þátt í að fagna degi sjómanna á starfssvæði Faxaflóahafna í höfuðborginni,“ segir Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna.