Þann 20. febrúar 2023 kl. 16:00 voru opnaðar umsóknir um þátttöku í samstarfssamkeppni um alverktöku, vegna hönnunar og byggingar á fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka í Sundahöfn, Reykjavík.
Eftirfarandi teymi sóttu um:
- ÍAV, VSÓ Ráðgjöf ehf og Brokkr studio
- Ístak hf., THG arkitektar, Exa nordic, Teknik, Lota, Brekke &Strand, Örugg, Landslag
- E. Sigurðsson ehf., Arkþing-Nordic, Efla
Fleiri umsóknir bárust ekki. Faxaflóahafnir yfirfara umsóknirnar og hafa samband við þátttakendur þegar því ferli er lokið.