Í dag, fimmtudaginn 25. nóvember, var stór stálprammi fluttur inn í Vesturbugt, bak við Sjóminjasafnið. Pramminn verður notaður til að rífa Verbúðarbryggjuna og byggja nýja trébryggju úr harðvið. Verktaki er Aðalvík ehf. og eru verklok áætluð á vordögum. Hafnsögumenn Faxaflóahafna fluttu prammann með dráttarbátum.
Stálprammi fluttur inn í Vesturbugt
25. nóvember, 2021 | Forsíðu fréttir