Staðfestar fréttir hafa borist um að jólatréð frá Hamborg fari í skip á þriðjudaginn 18. nóvember og sé væntanlegt til Reykjavíkur þann 25. nóvember. Að venju veriður tréð staðsett á sínum gamla stað á Miðbakkanum og kveikt verður á ljósunum við hátíðlega athöfn kl. 17:00 á laugardaginn 29. nóvember. Á eftir verður gestum boðið í heitt súkkulaði og kökur í Hafnarhúsinu. Takið daginn frá og mætið með börn og barnabörn á Miðbakka. Væntanlega koma 6 gestir frá Hamborg.

FaxaportsFaxaports linkedin