Stjórn starfsmannafélagsins sló ekki fleilnótu frekar en fyrri daginn með starfsmannaferðinni með Eldingu um flóann og á Skaga. Hörðustu sæhundar mættu stundvíslega um borð í Eldinguna og sigldu sem ekkert væri inn í Sundahöfn og þaðan upp á Skaga með viðkomu norðan Viðeyjar þar sem sá guli fékk að kenna á því.
Þegar komið var á Skagann var haldið í einstakan kynningarleiðangur um plássið og að lokum sest að snæðingi í hátíðarsal Hafnarhússins á Skaganum, sem hafði að sjálfsögðu verið skreyttur eins og best verður á kosið. Að vökulokum stóðu allir upp (þrátt fyrir þrjá brotna stóla) og eins og segir í vísunni einu sönnu: „……og allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó“. Við þetta tækifæri sýndu margir á sér sínar bestu hliðar, Sigga formaður, Elli kistusmiður, Lárus grillari og ekki síst Jón forseti ökumaður. Hafði þau og aðrir bestu þakkir.