Þau tímamót munu eiga sér stað nú í desembermánuði að Sigríður Sigurbjörnsdóttir lætur af störfum eftir að hafa unnið hjá fyrirtækinu í rétt tæp 25 ár.  Um leið og Sigríði er þakkað fyrir langa og farsæla samfylgd þá er henni óskað velfarnaðar og farsældar.  sigridur_sigurbjSigríður heldur af landi brott þann 12. desember n.k. og því verður síðasti virki vinnudagur hennar þann 10. desember.

Þá hóf nýr starfsmaður störf þann 1. desember s.l. en það er Sigríður D. Bergmann, en hún tekur við verkefnum Kristjönu Ólafsdóttur, sem aftur tekur við þeim verkefnum sem Sigríður Sigurbjörnsdóttir hafði á hendi.  Sigríður D. Bergmann er boðin velkomin til starfa.

copy_of_sigridur_bregmann

FaxaportsFaxaports linkedin