Árlegt Brauðtertukaffi fór fram í Hafnarhúsinu í morgun – og tókst hið besta. Við það tækifæri var Hreinn Sveinsson kvaddur formlega eftir liðlega 37 ára starf hjá Reykjavíkurhöfn og síðar Faxaflóahöfnum.
Allir þekkja til strafa Hreins en starfsferill hans einkenndist af farsæld og einstakri samviskusemi. Þrír starfsmenn létu af störfum á árinu, Hreinn, Sigríður Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Loftsson og er þeim öllum óskað velfarnaðar og þakkað gott samstarf.