Ár 2009, 21. október kom öryggisnefnd Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 09:30.
Mættir: Hallur Árnason, Jón Guðmundsson, Ragnar Arnbjörnsson, Gísli Jóhann Hallsson, Júlíus Víðir Guðnason og Gróa H. Ágústsdóttir frá Vinnueftirlitinu.
Atriði sem farið var yfir á fundinum:
- Farið var yfir áhættumat starfa fyrir Faxaflóahafnir sf.. Gróa var mjög ánægð með hvað Faxaflóahafnir sf. væri langt komin í vinnuöryggi starfsmanna. Bauð hún Faxaflóahöfnum að taka þátt í verkefni á þeirra vegum sem felur í sér úttekt og yfirferð á allri starfssemi á öllum starfsstöðvum. Einkunn yrði svo gefin í lokin. Ákveðið var að taka tilboðinu og stefnt að að hefja úttektina í lok desember eða byrjun janúar. Vék Gróa af fundi kl. 10:30
- Haldið var áfram yfirferð á áhættumati starfa og það uppfært.
Fleira ekki gert,
Fundi slitið 11:10