Á fundi með starfsmönnum hafnarþjónustu var farið yfir ýmis atriði sem tengjast breyttu vaktafyrirkomulagi og fyrirkomulagi á föstum yfirvinnutímum. Miðað er við að nýtt skipulag taki gildi 1. mars 2010.
Á fundinum var farið yfir nokkrar glærur sem eiga að gefa almenna mynd af breytingunum. Þær glærur má sjá hér. Þá var nefnt að lítlsháttar breytingar verða á þeim starfslýsingum sem kynntar voru í febrúar s.l., en skjal varðandi þau mál má sjá hér.
Þrennt skal áréttað sérstaklega:
A) Breytingar taka gildi 1. mars, en formlegt bréf verður sent starfsmönnum hafnarþsjónustu fyrir 1. desember n.k.
B) Starfsmönnum hafnarþjónustu er boðið upp á að eiga fund með hafnarstjóra eða yfirhafnsögumanni til að fara nánar yfir þau mál sem viðkomandi varðar.
C) Í lok árs 2010 verða áhrif breytingarinnar skoðuð sérstaklega og gerð grein fyrir þaim á fundi með starfsmönnum.
Yfirhafnsöguðmaður mun í frmahaldi setja inn á vefinn vaktatöflu í hafnarþjónustunni – eins og óskað var eftir á fundinum.