Nú liggur fyrir uppgjör Faxaflóahafna sf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins. kreppan bítur í tekjurhlið Faxaflóahafna sf. eins og annarra fyrirtækja og rétt að gera örstutta grein fyrir helstu staðreyndum í þessu.
Heildar tekjur fyrstu sex mánuððina voru 1.011.454.827 krónur en voru áætlaðar verða 1.051.967.000. Mismunurinn er okkur í óhag upp á 40.5 mkr. Stærst vegur í þessu að vörugjöld eru þessa mánuði 340.7 mkr. en áætlun hafði gert ráð fyrir 428.1 mkr. þannig að mismunurinn er neikvæður um 87.3 mkr. í fyrra voru vörugjaldatekjur á sama tíma 461.5 mkr. þannig að tekjufallið er verulegt og þrátt fyrir að reynt hafi verið að spá varlega er útlit fyrir að það muni ekki duga. Jákvætt á tekjuhliðinni er þó að aflagjöld eru nokkru hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
Reksturinn er nánast á áætlun þannig að þau markmið sem þar voru sett halda. Fjármagnsliðirnir eru hins vegar talsvert hærri enda verðbólga á tímabilinu mun meiri en áætlað hafði verið og staða íslensku krónunnar afleitari en reikna mátti með. Meginniðurstaðan er að fyrir fjármagnsgjöld er tap á rekstrinum upp á 9.5 mkr. en áætlun miðaði við 5.4 mkr. í tap – en í heildina er tapið 118.1 mkr. á meðan áætlun gerði ráð fyrir 68.6 mkr. í tap. Gert var ráð fyrir að seinni hluti ársins myndi vega tapið upp og koma okkur yfir strikið en í ljósi þeirra talna sem nú liggja fyrir er það afar hæpið. Því er ljóst að skoða verður reksturinn sérstaklega vegna þeirra mánaða sem eru eftir – en augljóst er einnig að miðað við tekjuhliðina þarf að ramma rekstrargjöldin inn í það sem er til ráðstöfunar – til lengri tíma.
Fjárfestingar Faxaflóahafna sf. eru innan þess ramma sem sett var en heldur dregið úr nú seinni hluta ársins. Nokkur verkefni eru á lokastigi svo sem við Vogabakka og efnisskiptaskurður utan Klepps, en gatnagerð á Grundartanga lýkur í nóvember og á svipuðum tíma lýkur frágangi við landfyllingu í Suðurbugtinni frá Sjóminjasafni áleiðis að slippnum.
Niðurstaðan er sem sagt sú að næg verkefni eru framundan en horfa verður til þess efnahagsumhverfis sem augljóslega verður viðvarandi næstu misseri.
Gísli G.