Hátíð hafsins verður haldin í 21. sinn, dagana 1. og 2. júní, á Grandagarðinum. Hátíðarsvæðið nær frá Hörpu, gegnum Gömlu höfnina, út á Grandagarð og að HB Granda. Faxaflóahafnir, HB Grandi og Sjómannadagsráð standa sameiginlega að framkvæmd Hátíðar hafsins 2019 og eru meginstoðir hátíðarinnar.
Hátíðin samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum og er haldinn í þeim tilgangi að gefa fjölskyldufólki tilefni til að heimsækja hafnarsvæðið í Reykjavík og kynnast hafnarstarfsemi, útgerð og störfum sjómanna. Tónlist, skemmtun og veitingastaðir á svæðinu gleðja gesti og gangandi með ýmsu góðgæti. Gamla höfnin iðar einfaldlega af lífi þessa helgi.
Frekari upplýsingar um dagskrá Hátíðar hafsins 2019, má finna á heimasíðu hátíðarinnar.
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/MG_0013.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/MG_0014.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/MG_0123.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/34368481_10215503549960180_7881415307720392704_n.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-5.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-16.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-24.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-28.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-34.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-37.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-40.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/pp_G0A0072-41.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/PP_G0A1597-8-1024x683.jpg)
![](https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/2019/05/PP_G0A1597-10-1024x683.jpg)