Tilboð voru opnuð þann 29. janúar sl. og bárust fimm tilboð frá þrem aðilum í þjónustuhúsin við Miðbakka og Skarfabakka.
Tvö tilboð eru fráviksboð og verður verð og gæðaeinkunn ekki reiknuð í endanlegum samanburði.
Eitt tilboð barst í stálgrindarhús með segldúk. Þar sem eitt tilboð barst í stálgrindarhús með segldúk er ekki reiknuð einkunn vegna verðs eða gæða.
Á grundvelli heildareinkunnar hafa Faxaflóahafnir ákveðið að ganga til saminga við Hafnarbakka – Flutningatækni ehf, um þjónustuhús á Miðbakka og Skarfabakka.
Einnig hafa Faxaflóahafnir ákveðið að ganga til saminga við Stólpa Gáma ehf, um Stálgrindarhús með segldúk á Skarfabakka.