Í morgun var undirritað samkomulag Faxaflóahafna sf. og 6 stéttarfélaga starfsmanna um frestun á ákveðnum ákvæðum gildandi kjarasamninga. Samkomulagið er efnislega samhljóða því samkomulagi sem fulltrúar ASÍ og SA undirrituðu í gær. Meginefnið fjallar um frestun á endurskoðunarákvæði samninganna til loka júnímánaðar og frestun á hækkun sem átti að taka gildi 1. mars.