Tól



Veður

Gamla höfnin | Kleppsbakki | Akranes | Grundartangi

Hitastig
Vindur
Hviða
Sjávarhæð
Loftvog
Nánar
23.05 19:40





Hugmyndasamkeppni


 
Hægt er að skrá sig og sækja gögn samkeppninnar, með því að smella hér
 
 



Inngangur:
 

  

Síðastliðið sumar hófst undirbúningur hjá Faxaflóahöfnum sf. vegna opinnar hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Þessi undirbúningur er unninn í samvinnu við Reykjavíkurborg og aðra hagsmunaaðila. Hér verður gerð grein fyrir umfangi samkeppninnar, hverjir stóðu að vinnu við undirbúning hennar sem og tímáætlun.
Markmið þeirrar hugmyndasamkeppni, sem nú er hafin, um framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar í Reykjavík, er að draga fram hugmyndir sem sameina mismunandi þætti sem að verkefninu snúa og eru aðallega þessir:
 
  • Framtíðarsýn Faxaflóahafna sf.
    • Gamla höfnin sem hluti miðbæjarins
    • Varðveisla og þróun léttari starfsemi innan Gömlu hafnarinnar
    • Hugsanlegar landfyllingar og íbúðabyggð
    • Friðun, verndun sögu og minja
  • Hugmyndabanki fyrir vinnu við Aðalskipulag Reykjavíkur sem nú er í endurskoðun
  • Sýna fram á leiðir í samgöngumálum í takt við tillögu


Samkeppnisform:
 

Samkeppnin er opin almenn hugmyndasamkeppni.
Samkeppnin er tvíliða, þ.e. annars vegar opin fagaðilum, arkitektum og skipulagsfræðingum, sem skila inn hefðbundnum heildstæðum skipulagshugmyndum (hluti A) einnig almenningi sem getur skilað inn hugmyndum og ábendingum með ýmsu sniði. Gert er ráð fyrir að valdar hugmyndir nýtist við áframhaldandi skipulagsvinnu á svæðinu. (hluti B). 
Ein og sama samkeppnislýsingin gildir fyrir báða hluta samkeppninnar. A-hluti samkeppninnar er unnin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
 
Dómnefnd
Sjö manna dómnefn skipa eftirtaldir aðilar.
Tilnefndir af verkkaupa:
     Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður dómnefndar, borgarfulltrúi, formaður stjórnar Faxaflóahafna sf og skipulagsráðs.
     Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi og situr í stjórn Faxaflóahafna sf.
     Lena Helgadóttir, arkitekt FAÍ.
     Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
 
Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
     Þorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt FAÍ.
     Valdís Bjarnadóttir, arkitekt FAÍ.
     Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ.
 
Ritari dómnefndar er Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt FAÍ.
 
Verðlaun
Heildarverðlaun í samkeppninnni eru 14.000.000 kr.
 


Tímaáætlun samkeppni:
  
Samkeppnisgögn afhent                                     7. júní 2009
Vettvangsskoðun                                               16. júní 2009
Fyrri skilafrestur fyrirspurna                              19. júní 2009
Svör við fyrri fyrirspurnum                                  24. júní 2009
Seinni skilafrestur fyrirspurna              11. september 2009
Svör við seinni fyrirspurnum                 18. september 2009
Skilafrestur tillagna                                       6. október 2009
Niðurstaða dómnefndar                          lok nóvember 2009
 

Þeir sem vinna að undirbúningi samkeppninnar eftirtaldir:
 
Júlíus Vífill Ingvarsson - formaður Faxaflóahafna sf. og Skipulagsráðs
 Dagur B. Eggertsson - borgarstjórn Reykjavíkur
 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - skipulagshagfræðingur
 Ólöf Örvarsdóttir - skipulagsstjóri
 Gísli Gíslason - hafnarstjóri
 
Vinnuhópur:
 
Vignir Albertsson – skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna
 
Þorvaldur S. Þorvaldsson – arkitekt
 
Margrét Leifsdóttir – arkitekt á skipulags- og byggingarsviði
 
Ásdís Ingþórsdóttir – arkitekt
 
Ábendingar og fyrirspurnir sendist á samkeppni@faxafloahafnir.is
 
Ef þú vilt fá sendan tölvupóst, þegar samkeppnin hefst, sendu okkur þá línu á samkeppni@faxafloahafnir.is .